Reykjavík Fashion Festival helgin yfirstaðin, alveg rosa, kannski einum of… eða nei alveg passleg.
Byrjaði helgina á fimmtudegi, hitti Önnu Huldu, Völu og Guðrúnu Álfheiði í miðbænum. Fengum okkur yndislega máltíð á Marengs í Listasafninu og vígðum hönnunarmars borðið eftir að hafa spígsporað einn hring í kringum tjörnina í hádeginu. Kíkti í heimsókn í VR-II í heimildaleit, þegar ég var komin upp á bókasafn voru allar bækurnar horfnar! Seinni part dags var kaffitár sötrað með Rannveigunni minni, yndislegar myndir Sögu Sig og Hildar Yeoman skoðaðar í Kling & Bang á sýningunni Álagafjötrar. Þaðan var stefnan tekin í Kron að kíkja á nýju skólínuna og í Facehunter partýið. Eftir vænan skammt af girnilegum fötum fengum við okkur vænan skammt af girnilegum búlluborgara. Héldum því næst í opnunarpartý RFF á KB með Ólöfu, Láru og Leifi. Beiluðum snemma heim í strætó.
Föstudagurinn var massaður á bókasafni HR í gæðastjórnun og var svo verðlaunuð með kaffi og kökum með mömmu og Önnu Margréti. Skálaði í razz um kvöldið heima hjá Ólöfu, töltum til Evu Lindar í fyrirpartý og svo tjúttuðum við af okkur rassinn á Nasa við tóna Retro Stefson, Air France og Gus gus. Hversu gaman? Mega gaman! Fórum svo auðvitað á KB og endað í eftirpartýi hjá Mása. Vaknaði svo 4 tímum seinna í sófanum bara nokkuð hress, Stefán Atli vafður í handklæði og Mási spilandi á gítar. Eyddi bróðurparti dagsins á Prikinu í þynnkumat og afslappesli. Kom heim til mömmu og fékk mér lúr, kom heim til pabba og fékk mér lúr. Rankaði við mér klukkan níu og dreif mig af stað aftur.
Ýr, Ólöf, Leifur, Sædís og Tobba vildu drykk en ég var ekki alveg jafn þyrst. Orkuskot gerði sitt. Nasa tekið annað kvöldið í röð með Sykri, Bloodgroup og PEACHES. Hún var rosaleg, búningaskipti í hverju lagi, crowdsurfaði og gekk á höndum áhorfenda, í sundbol með “pussylight”, frussandi gerviblóði yfir fremstu raðirnar. Án efa ein skemmtilegasta framkoma sem ég hef séð lengi. Eftir að hafa svolgrað í mig enn einum orkudrykknum var farið í megatroðninginn á KB með Þóri og Rannveigu. Sneiðin á Pizza Pronto bragðaðist eiginlega bara illa svona ódrukkin.
Heimleiðin var hressileg, var stoppuð af löggunni við Sæbrautina og svo skemmtilega vildi til að Binni var akkúrat lögregluþjónninn sem spurði hvort ég væri ekki í standi
Vaknaði eftir 4 tíma svefn í annað skiptið og var mætt í brunch til Margrétar fyrir hádegi. Gimsteinakósýheit og fermingarveisla voru sunnudagsplanið. Núna er ég við það að sofna, byrjuð að prjóna enn eina peysuna (frumsamda sailor ullarpeysu, mega kúl) og mastera fiskifléttuna.
Góða nótt














































































