h1

Lenti í Karma Police

October 4, 2009

Síðast liðin vika er búin að vera ansi viðburðarík og skemmtileg.

Um síðustu helgi skipulagði ég bátsferð til Vaxholmen sem er lítill bær í skerjafirðinum hérna í Stokkhólmi. Það mætti eiginlega segja að sá dagur hefði verið síðasti sumardagurinn enda búið að vera skítkalt síðan.

IMG_5230

Lítil eyja í skerjafirðinum,  algengt er að Svíar eigi frístundahús á þessu svæði og sigla þangað á bátunum sínum.

IMG_5239

Ég keypti mér körfu og ýmislegt góðgæti fyrir ferðina.

IMG_5251

Íslenskir Stokkhólmsbúar í picnic í Vaxholmen.

IMG_5252

Seinna um kvöldið var haldið í margarítu veislu hjá Margréti Rós með algjöru stelputjútti.

IMG_5205

Við Hildur og Halla ofurhressar í leigubílnum á leið á Stureplan.

Reyndar er ég búin að vera hjá Margréti upp á annan hvern dag! Fékk geggjað spelt spaghetti með rucolapestói, rauðvíni og alls konar gúmmelaði með stærðfræði sem eftirrétt. Síðan horfðum við auðvitað að fyrsta þáttinn í nýju Greys Anatomy seríunni og borðuðum hollustu gulrótar muffins að hætti Margrétar.

Þegar ég var ekki í heimsókn hjá Margréti var ég í fleiri bátsferðum, á miðvikudaginn var valfrjáls bátsferð með bekknum. Farið var til Álandseyja (Finnlands) og okkur til mikillar ánægju og yndisauka var ekki bara verkefnavinna um alþjóðlegan iðnað og umhverfisvernd heldur líka sænskt hlaðborð og veigar. Ekki var heldur verra að geta verslað sér eina rommflösku í taxfree fyrir mojito. Lét samt ekki þar við sitja og fór í stystu bátsferð Svíþjóðar á milli Slussen og Djurgarden og kíkti á lokaða tívólíið Gröna Lund, keypti kóngafólks póstkort fyrir ömmu og annað kósý.

IMG_5267

Skemmtilegt sumarhús á skeri við Álandseyjar.

IMG_5270

Ég og Michelle bekkjarsystir mín frá Indlandi.

IMG_5274

Hluti af bekknum, þarna má sjá Indverja, Írana, Íslending, Frakka, Colobíubúa, Nígeríumann og Pakistana.

IMG_5277

Ég með tælensku Dang og kínversku Ling, bekkjarsystrum mínum.

Helgin var í hressari kantinum. Eftir föstudagsbandý og föstudagspizzu héldum við bandýhóparnir í innflutningspartý til Danderyd drengjanna Hjartar og Daða. Kvöldið var mjög skemmtilegt en endaði samt ekki eins vel. Kvaddi ferðafélagana Steinar, Árna Pétur og Söndru á Slussen og hélt mína leið á Telefonplan, klyfjuð íþróttatösku, bandýkylfu og veski. Hélt að ég væri bara nokkuð örugg í lestarkerfinu svona vel vopnuð en það átti hins vegar eftir að snúast upp í andhverfu sína. Ég var trufluð í sudoku þrautinni í símanum mínum af þeldökkum manni með gulltennur sem vildi endilega verða vinur minn. Ég sagði að örlögin yrðu að ráða því hvort við  myndum hittast aftur. Hann fór sem betur fer fljótt út eftir að ég neitaði honum um númerið mitt og þá hélt ég þrautinni áfram. Þegar ég fór að nálgast stoppistöðina mína stóð ég upp með allt draslið, skömmu seinna örkuðu tveir karlmenn með arabískt útlit framhjá mér og fóru út tveimur hurðum á undan mér. Ég hafði tekið eftir þeim á Slussen en ekkert verið að spá í þeim enda á fullu í sudoku. Ég tók eftir að þeir voru að fylgjast með mér í lestinni og þóttust meira segja ekki þekkja hvorn annan. Þegar ég geng út úr lestinni sé ég að þeir taka sitthvorn ganginn upp, annar rúllustigann en hinn brekkuna. Ég reyni meðvitað að vera fyrir aftan þá og sjá þá. Þegar ég kem upp er sá sem fór rúllustigann ekki enn kominn upp, sem er skrítið því hann ætti að hafa verið fyrstur. Ég býð þangað til hann kemur upp og sé að hann horfir á mig og gengur hægt að útidyrunum öðrum útidyrum en sá fyrri. Ég sé þá bíða báða utan við sitthvoran útganginn, finn að ég get ómögulega hlaupið heim með allt dótið með mér. Ákvað því að fá að bíða hjá breskum fjallgöngugarpi sem var að bíða eftir strætó líklegast til að komast í göngu. Ég segi honum frá hvað sé í gangi og hann er mjög vinalegur. Þegar ég hef beiðið í um 20 mínútur og sá seinni, sem var búinn að hanga í símanum og fylgjast með mér, er horfinn þori ég ekki heim. Finnst eins og þeir séu einhvers staðar að bíða eftir mér þar sem ég sé þá ekki. Í staðinn fer ég beint upp í leigubíl og fæ far þá litlu 300 m sem eru heim. Með hjartað í buxunum sofna ég um sjöleytið.

Daginn eftir var mér boðið í íslenska kjötsúpu til Steinars sem var æðisleg, einnig voru nokkrir daquiries í boði og Spurt að leikslokum leikið. Hér sést Steinar, kjötsúpu- og kokteilmeistari kvöldsins:

IMG_5304

Gott karma var klárlega mottó kvöldsins. Þegar ég fór í bæinn gátum við logið okkur inn á Kåken og þegar inn var komið gaf barþjónninn mér bjór, síðan var haldið á Spy bar þar sem ég komst ókeypis inn framfyrir röðina og alles. Næsta stopp var McDonalds þar sem ég fékk 2 BigMac og stóra kók gefins frá afgreiðslustráknum.

Hins vegar týndi ég fallegu frönsku alpahúfunni minni, taupokanum sem ég er alltaf með og mokka vettlingunum í þessari viku. Ég er rosaleg þegar kemur að því að týna húfum og vettlingum og hvað þá uppáhaldsdóti. Komst síðan að því að þessu var stolið. Ýkt óheppin og kannski full kærulaus. Hérna í stórborgunum geymir maður ekki hlutina sína út um hvippinn og hvappinn eins og í Reykjavíkinni. Pollýannan í mér telur mig heppna að 66°N dúnúlpan sé komin heim. Held að ég fari héðan í frá bara í H&M dóti í bæinn… og þá hef ég afsökun til að kaupa örlítið meira af fötum ;)

Advertisement

One comment

  1. Ojj hvað þetta er krípí!! Það er eins gott að hafa varann á. Nú ætla ég alltaf að passa mig geggjað í lestinni.



Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.