h1

Mömmuknús

October 19, 2009

Jæja núna er ég orðin ein í stúdíó 504 eftir dásamlega daga með Önnu Margréti og Mömmulínu.
Sungum lagið Not fair með Lily Allen svo oft að ég næ því ekki úr hausnum á mér, ykkur til gleði og ánægju er hægt að hlusta á lagið í widgetinu af vodpodinu mín hér til hægri á síðunni.

Ég sótti þær á T-Centralen á fimmtudaginn og við dembdum okkur strax í túristann. Gamli Stan þræddu sundur og saman og konungshöllin sótt heim í sólskininu. Göngutúr sem endaði á Drottningagötunni með H&M innreið og á pizzu á Vapiano, classic svo ekki sé minna sagt.

IMG_5336
Daginn eftir var afmælisbarnið Anna Margrét vakin með nýbakaðri franskri súkkulaðiköku enda nýorðin 12 ára. Dagurinn var byrjaði hressilega með rigningu og bátsferð í Djurgården.

IMG_5344

Afmælis-snúllan valdi að fara á safnið Junibacken sem er safn sænskra rithöfunda en þó sérstaklega tileinkað Astrid Lindgren. Eftir að hafa rölt framhjá Grönalund tívolínu (sem er lokað á þessum tíma árs), Skansen, Nodiska Museet og Vasasafninu fórum við inn á Junibacken og hvíldum okkur á veröndinni hjá Mumin álfunum.

IMG_5359

Mamma ákvað að hringja heim og láta vita að allt væri í lagi í Stokkhólmi haha

IMG_5363

En það breyttist fljótt eftir að við kíktum á Norrmalmstorg og Massimo Dutti búðin kom óvænt í leitirnar.

IMG_5378

Laugardagurinn var tekin snemma og við mættar í Lidingö til að kíkja á Millesgården.

IMG_5388

Síðan var skólinn minn KTH skoðaður, að minnsta kosti það helsta.

IMG_5394

Auðvitað var endað í búðum og núna erum við nokkrum flíkum ríkari en ótal minningum (“,)
Sunnudeginum vörðum við á rölti um Södermalm og  í Gamla stan þar sem við fengum okkur heitt súkkulaði og kökur á kaffihúsi sem er akkúrat 200 árum eldra en ég,  stofnað 1785.

IMG_5419

IMG_5414

IMG_5416

Æðislegir dagar búnir og ég get ekki annað en þakkað fyrir mig :*

Núna er það vikufrí til viðbótar þangað til alvaran byrjar aftur.

One comment

  1. Skemmtileg ferðasaga Erna mín og aftur ástarþakkir fyrir okkur ! Njóttu þess að vera í fríi nokkra daga í við´bót :) mömmuknús



Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.