h1

Saknar systranna sinna

October 21, 2009

Hvernig er ekki hægt að fá vott af heimþrá og sakna systra sinna ofboðslega þegar maður fær svona  falleg skilaboð af Lazytown síðunni:

Erna Gurrý
Hæ elsku Erna Gurrý systir. Ég er veik heima hjá mömmu og við erum í tölvunni að lita Sollu Stirðu og Íþróttaálfinn. Ég er með gubbupest en er að batna. Ég sakna þín rosa mikið Bless bless Emma Dís
Emma Dís

Síðan kom hún Anna Margrét með fullar töskur af gjöfum í síðustu viku og mamma reyndar líka ;)
Þeirra á meðal var regnhlífar órói sem er kominn upp í loftið mitt:

IMG_5448

Frá Brynju Dögg og Emmu Dís fékk ég kort og allskonar perl sem er komið á nýju hilluna mína:

IMG_5441

IMG_5440

IMG_5445

IMG_5453

Ég er svo stolt af þeim og hlakka ógeðslega mikið til að knúsa þær allar sex um jólin: Ísabellu Ósk, Emmu Dís, Brynju Dögg, Önnu Margréti, Kötlu og Mögnu.
Ekki bætti úr skák að ég varði gærdeginum með Helgu Möggu, Theodóri, Evu og Stefáni Birgi, yndislegur dagur. Vöppuðum um bæinn og kíktum á kaffihús, mig vantaði bara eina litla Ísabellu Ósk til að keyra í vagni um Stokkhólm.

IMG_5450

Eftir 5 tíma mömmuleik, settist ég inn á kaffihús númer þrjú þann daginn og byrjaði að prjóna kraga. Stoppaði stutt við því mér og Jónu Dögg var boðið í mat til Margrétar Rósar og Einars mmm.

Ég má til með að deila með ykkur matardagbók gærdagsins, því ég er dolfallin yfir því hversu Margrét er dugleg í eldhúsinu.

Morgunmatur: Hafragrautur með banana og kanilsykri.
Morgunkaffi: Gulrót, plóma og mandarína.
Hádegismatur: Lax, salat og brauð.
Kaffi: Kókoskúla, smá súkkulaði og latte.
Snarl: ACE djús.
Kvöldmatur: Gulrótakarrý súpa með grófu hafra kúmen brauði, kóríanderlaufum og cashewhnetusósu.
Kvöldkaffi: Sykur- og saltlausar hafra-hnetusmjörs-kakó kúlur og smakk af heimagerðu mangó chutney.

Hér er Margrét með ææææðislega matinn:

IMG_5451

Advertisement

2 comments

  1. Ég man svo vel þegar við vorum fyrir utan Eyjabakkann, 6 og 7 ára skottur, að tala um hversu mikið okkur langaði í lítil systkini:)

    Svo fékkst þú 6 systur og ég fékk 4 bræður og eina systur. Lúxus;)


  2. Mér var einmitt hugsað til þín í gær þegar Helga Magga talaði um systra / systkina náttföt. Við áttum alltaf svoleiðis ;)



Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.