
Janúarlok
January 31, 2010Eins og flestir vita er ég komin aftur heim frá Íslandi eftir yndislegt jólafrí. Fyrstu vikuna eftir að ég koma til Stokkhólms var ég veik í næstum viku, fyrst gubbupest og svo rosa hálsbólga með svæsnu kvefi sem ég hef ekki enn náð að losa mig við. Ég held að nístingskuldinn hafi sitt að segja í því. Ég ætla nú ekki að taka upp þráðinn frá því síðast enda alltof langt síðan en hérna koma nokkrar myndir frá helginni.
Eftir hið vikulega bandý hitti ég Ingrid, sænska vinkonu mína sem ég kynntist í Miami, og við hittum vini hennar og fórum svo þrjár út að borða. Ég bað þær um að tala sænsku allan tímann við mig en ég reyndi að svara á sænsku eða fékk að grípa í enskuna inn á milli, ég held að þetta sé allt að koma.
Á laugardaginn var undanúrslitaleikur Íslands og Frakka og bandýhóparnir hittust hjá Danderyd drengjunum Daða og Hirti. Sú heimsókn ílengdist í 12 tíma leikja dag… horfðum á báða handboltaleikina og spiluðum fram eftir kvöldi. Er ekki frá því að ég hafi smakkað næst-gómsætustu pizzu borgarinnar á eftir Birkastans Pizzeria auðvitað!
Í dag komu svo Ásdís og Hjördís yfir til mín og við prjónuðum með leik Íslands og Póllands. Ég er búin að vera nokkuð dugleg að prjóna upp á síðkastið og núna er ég komin með tvö perluprjónuð eyrnabönd og dökkgrátt snood (stór og víður ullarkragi), “frumsamda” peysan er á góðri leið með að vera tilbúin, ég á eftir að kaupa heklunál og gera bekkina og hnappagötin. En eins og sést þá á ég líka eftir að þvo hana, þannig að hún á eftir að jafna sig betur.
Síðan tók ég nokkrar myndir af íbúðinni enda eitthvað búið að breytast síðan síðast. Ég fékk til mín tvo vini mína, Edda og Ella, í vetur til að hjálpa mér að setja upp myndahilluna mína.
Núna lítur íbúðin/herbergið/stúdíó 504 svona út:
Perlið hef ég fengið í nokkrum sendingum frá litlu systrum mínum, síðan eru þarna plötur sem ég hef gaman af. Ég ætlaði reyndar að bögglast með plötuspilarann minn hingað eftir jólin eftir betri umhugsun þá var það alveg fráleit hugmynd. Ætli ég fjárfesti ekki í einum ef ég finn einhvern fallegan því nú á ég 13 vínylplötur (fyrir utan farmana heima) og engan spilara.
Hérna er svo eldhúsborðið með hjartalaga viðarskál sem Anna Margrét gerði í smíðum og gaf mér í jólagjöf ásamt fleira fallegu með Kötlu minni :* Amma Gunna saumaði fallegasta dúk sem ég hef séð handa mér og núna gæti ég ekki verið sáttari með pínu litla eldhúsboðið mitt.
Annars er ég með pizzu í ofninum og pepsi í frystinum… (ég eeeer að reyna að minnka þetta
)
Hér á eftir koma svo nokkrar svipmyndir úr íbúðinni svona fyrir þá sem hafa áhuga.
Ófrýnilegi sófinn er á sínum stað og ég er enn að dáðst að heklaða hvíta dúknum sem ég keypti í second hand búð fyrir jól. Hlakka til að kaupa heklunál og fara að læra meira fínerý.
Knús Erna












Frábært hvað þú ert dugleg að prjóna

Svaka sætt hjá þér í íbúðinni
knús frá mömmu
Hæ, rosaflott hjá þér en þau hræða mig mikið þessi kerti sem þú ert með fyrir aftan blúndúgardínur!
Knús
r
vá ekkert smá kósý hjá þér! gaman að fá blogg frá þér;)ég fylgist alltaf með síðunni sæta mín:)