h1

…og sólin hún situr við borðið

February 7, 2010

Síðasta vika er búin að fljúga, mætti í skólann uppá hvern einasta dag og meira að segja á laugardegi líka, sem er náttúrulega bara met. Fyrir þá sem ekki vita þá eru yfirleitt bara tímar á mán-þri-mið. Undrabarnið Alex, Frakki sem er þremur árum yngri en ég og hefur tvisvar verið hækkaður um bekk, hefur verið mér innan handar þessa vikuna því ég hef aldrei forritað rökrásir/sjálfvirkan búnað áður. Þetta er allt að koma og þess vegna á ég frí í dag, jibbýkóla!!

Í gær skelltum við Margrét Rós okkur í RISA workout í Globen. Globen er stærsta sýningarhöll Svía að ég held. Óborganleg upplifun að svitna og púla með hundruðum sænskum íþróttaálfum. Við skemmtum okkur endalaust mikið…

Svakaleg stemning og dúndrandi tónlist. Tíminn átti að klárast klukkan sex og þegar ég var alveg búin með varabensínið athugaði ég með klukkuna og hún var þá orðin 18:35. Ég hafði boðið nokkrum stelpum heim í Quesadillukvöld og mæting áæltuð klukkan sjö. Þannig að ég varð að skokka út áður en tíminn kláraðist og náði þessari mynd og þetta er nota bene bara hálfur salurinn.

Ég mætti náttúrulega alltof seint í eigið boð en það reddaðist með röskum höndum í eldhúsinu litla. Gæddum okkur á Quesadillum, rauðu, blandi og súkkulaðibitabombum ala Hjördís, yfir Melodifestivalen og íslensku undankeppninni í Eurovision.

Ég vona að fólk fyrirgefi þemað mitt, ómáluð, ógreidd og almennt sjúskuð… ég ætti nú eiginlega bara að klippa mig af þessari mynd haha en hér kemur ein ef til vill betri.

Það verður nóg að gera í næstu viku; tvö matarboð, þrjú partý og próf, lífið er gott!

Advertisement

4 comments

  1. Hahahaha vá hvað það var gaman á laugardaginn!! :-) Við förum pottþétt á næsta ári.

    Hlakka til að sjá þig á morgun.


  2. Vá hvað þú hefur verið með okkur í anda um helgina, því að fyrirsögnin þín var sungin hástöfum á báðum leiðum :)


  3. Hef sjaldan haft jafn gaman að því að mæta í ræktina :) og ég hlakka sko líka til morgundagsins, gómsætur hollustumatur sem ég hef ekki einu sinni hugmyndaflug í að gera hehe

    Já ég var sko með ykkur í anda… gaman að þið funduð það líka. Þurfum að gera meira af þessu ;)


  4. Ég kem með næst í Globen..þegar ég kem að heimsækja þig ;)



Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.