h1

Fallegu hlutirnir sem leynast í Stokkhólmi!

February 11, 2010

Kuldinn er orðinn það óbærilegur hérna í Stokkhólminum að ég “neyddist” til að kaupa mér ullarkjól úr Benetton. Er einmitt í öðrum ullarkjól núna og er ennþá með eldheitar kinnar eftir bæjarvappið í dag. Það eru fleiri í ullinni en við Íslendingarnir því nýjasta trendið hjá sænsku strákunum er að girða chinos buxurnar sínar ofaní gráirjótta ullarhosurnar eða jafnvel ullasokka sem eru í lit eða með mynstri.

En að deginum í dag, við Vala áttum yndislegan dag þar sem við skáluðum í latté í mest kósý kaffihúsinu í Gamla Stan sem kallast Mineur. Fer að jafnaði þangað aðra hvora viku að prjóna og slaka á. En það var einmitt það sem við gerðum. Fékk mér lífrænt bláberjapæ með ekki svo lífrænni vanillusósu namminamm. Þarna er ég í kaffihellinum mínum.
Niðurgrafinn kaffihellir með kósý sófum og góðum anda.Ég minnti Völu á hvernig ætti að fitja upp og svo breiddi ég út prjónaboðskapinn og nú er hún líka komin á fullt :) Þegar við rönkuðum við okkur á kaffihúsinu var aðeins farið að dimma og tilvalið að taka nokkrar myndir.

Fyrst að ég var í prófi í morgun (pass/fail klukkustunda langt ritgerðarpróf haha) varð ég að verðlauna mig örlítið og fann þessa gullfallegu gripi. Fyrstan kynni ég til leiks Blóma tebolla.Næst er það desilítramálið, hef hingað til slumpað allar uppskriftirnar sem ég hef bakað og það eru þónokkur kíló af sykri og hveiti.
Síðan er það frænka Þorsteins Bergmanns glers stellsins sem býr núna í geymslu í Reykjavíkinni, glerskálin Glæra
Stóðst ég ekki mátið þegar ég speglaðist í þessu fagra silfurfati, algjör eðall með ígröfnu konunglegu mynstri og undursamlegum köntum. Nú vantar bara fleiri kökur, þetta hefði sæmt sér vel með öllum fimm sortunum sem ég bakaði fyrir jólin. Ætli ég fái ekki uppskriftina af hollustukökunum hennar Margrétar Rósar núna, ójá.
Þegar ég kom auga á þennan litla og krúttlega svölu-unga-upptakara gat ég ekki annað en tekið hann að mér,  svona hlutir eiga að prýða falleg heimili en ekki búðarglugga. Hlakka til að opna lífræna ávaxtasafa með Svölunni.
Kveð með kósýkóngana í eyrunum (sjá vodpod efst til hægri á síðunni) og skilaboð til mömmu á skjánum og ennþá heitari kinnar en áður.

3 comments

  1. Oooooo, så fiiiint! Hvar fannstu þetta? Unginn og bollinn eru strax uppáhalds hjá mér.


  2. Unginn er æði!


  3. Þú ert nú meiri dúllan Erna mín ! fallegir hlutir sem þú nældir þér í !
    og takk fyrir sætu kveðjuna til mín :)



Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.