
Sunshine, sunshine, it’s fine. I feel it in my skin, warming up my mind
March 6, 2010Ég er búin að vera fáránlega dugleg að fara út, hitta fólk, partýtjútta, spinning, prófa hjólastóla, pilates, deypa á víni, dansa, jóga, kjafta, fika og njóta Stokkhólms. Eins og sést á þessari mynd:
Full mikið af því góða og nú er komið að skuldadögum. Ég fór á bandýæfingu, steig á boltann í hita leiksins, missteig mig og eyddi föstudagskvöldi uppi á spítala.
Núna er ég búin að vera í viku á hækjum og er bara svona líka nett pirrípú. Er búin að eyða gommu í þenna bólgna ökkla; 350 í komugjald, 200 fyrir röntgenmynd, 100 fyrir leigu á hækjum, 300 fyrir balanspúða svo fylgir þessu leigubílakostnaður og missir úr rándýru ræktinni minni. Safnast saman í nálægt þrjátíukallinum.
Við fórum nokkur á La Roux tónleika á Berns á miðvikudaginn. Þeir voru alveg æði, en ákvað að taka skrefið og vera á einni hækju. Það munar nefninlega ótrúlega miklu uppá pirring að gera að geta haft eina hönd til þess að klæða sig í vettlinga, stilla ipodinn, nota lestarkortið, ná að taka hárið úr augum eða munni þegar til þess kemur.
Elly Jackson vildi meina að Berns sé fallegasti tónleikastaður sem hún hefur spilað á og Stokkhólmsbúar hötuðu það ekki.
Eftir að hafa sungið hástöfum og dillað mér eins og ég gat verðalaunaði ég mig með einum bjór.
Svo knúsaði ég þessa stelpu aðeins því hún er að flytja heim til Íslands eftir næstum 5 ára dvöl í Svíþjóð.
Núna ætla ég að klára smá lærdóm áður en ég held af stað í innflutningsparý til Margrétar og Einars og ef fóturinn leyfir þá mun ég kíkja við á Spybar að vanda og jafnvel líta við hjá Hirti sem er með 25 ára afmæli. Alltaf í nægu að snúast.
Svo ég fyrirbyggi allan misskilning sem flestir í kringum mig virðast halda um námið mitt, eftir að hafa lesið statusa á facebook. Þá er það nú ekki alveg gefins. Í síðustu viku kláruðum við að forrita sjálfstýringu sem borar göt í plötu og hef eytt nokkuð mörgum dögum með Paríardrengum Alex á labinu. Já og ég er að fara í helgarferð Parísar í Júní að hitta Miami vinkonurnar mínar; Ingrid, Judith, Petru, Cristinu, Ninu og Marcelu ó hvað það verður gaman hjá okkur. Jibbýkóla! Að náminu aftur, þá eru alls konar minniháttar verkefni í gangi og í fyrradag átti ég góðan dag með Frökkunum, bjuggum til assembly kerfi fyrir handfang á þvottavél og rafmagnsventil. Núna er ég að fara að bardúsa við gæðastjórnunarverkefni og klára analytical hierachical process verkefnið og á morgun er það líklegast framleiðslu spáar verkefnið með Villa. Ég reyni sem minnst að tala um þessa hluti því þeir eru ekki þær fréttir sem mínir nánustu kunna að meta.
Ég dáist að henni Margréti Rós og öllum hennar fabjúlös hollustu uppskriftum, en ég persónulega er svo mikill sælkeri að ég get ekki sleppt hlutum eins og rjómabollum og hamborgurum. Mixaði þennan yndisilega bita í fyrradag og mátti til með að deila með umheiminum (400 gr hakk + salt, pipar, chilli + egg + laukur + hvítlauksrif = 5 borgarar)
Partý í kvöld eftir að hafa verið örmagna síðast liðin tvö kvöld, þetta á eftir að verða skemmtilegt. Ég, Jóna og Margrét í einhverju brjáluðu stuði.
Always love,
Erna




Dásamlegt að lesa um lífið þitt í Svíþjóð Erna mín. Leitt að heyra með fótinn en hann jafnar sig vonandi fljótt svo þú getir haldið áfram að lifa lífinu til hins ítrasta. Þú gerir og upplifir fleiri hluti á einum mánuði en margir upplifa á heilli ævi!
Hafðu það ofsalega gott og gangi þér rosa vel í náminu og öllu hinu líka
Knús frá verkfræðivinkonu,
Bryndís Alexanders.
Jiii það er aldeilis nóg að gera hjá þér, gaman að þú sért með svona blogg…þótt svo við heyrumst nú reglulega
hææ elsku Erna mín, ó hvað ökklinn er svakalegur! úff..vona að þetta hjaðni sem fyrst. Mig langar svo á eiga skype-fund við þig! sakna þín svo mikið. Ótrúlega gaman að lesa bloggið þitt, æðislegir hlutirnir sem þú keyptir um daginn..svalan og það;)
knús
Rannsa
Skemmtilegt blogg hjá þér og flott að hafa myndir með ! Við viljum endilega heyra allar fréttir af þér snúlla
Farðu samt varlega með fótinn
Hæ Erna mín
úff að sjá fótinn á þér, snýrð þér nú ekki marga pirouette svona… djók
en vonandi hefur hann lagast!
Ég verð alveg græn af öfund þegar ég les um lífið hjá þér þarna í Stokkhólmi. Enda byrjaði ég strax að googla master þar. hahaha mín komin með útþrá.
En hafðu það rosa gott og FARÐU VARLEGA !! veitir ekki af með morðhótanir í skólanum hjá þér.
Kveðja,
Lilja Róberts