h1

Where do you go to my lovely…

March 17, 2010

…ÍSLAND

Kom fjölskyldunni og Rannveigu skemmtilega á óvart núna á laugardaginn. Ég var búin að plana heimkomuna í samráði við Önnu, Ninnu, Emilíu og Hrafnhildi. Vinkonurnar náðu svo í mig út á flugvöll og komu með mér í smá rúnt um  bæinn. Ég hafði farið í H&M fyrr í vikunni og keypt föt á tvíburana fyrir Berglindi og svo smotterý handa Kötlu og Önnu. Ég sagði að Rakel fluffuvinkona í Stokkhólmi væri akkúrat að fljúga til landsins þennan laugardag og myndi skutla þessu til þeirra.

Í sannleika sagt var Rakel ekkert að fljúga til Reykjavíkur, heldur til Egyptalands og ég var þess í stað á leið með varninginn til fjölskyldunnar. Mamma var búin að láta vita að hún yrði heima allan daginn að læra lögfræði og það væri ekkert mál að ná á hana. Þannig að fyrsta stopp var í Kleifarseli, ég faldi mig bakvið stelpurnar á meðan Anna spurði eftir mömmu þegar Rúnar kom til dyra. Síðan hoppaði ég fram og gerði mömmu heldur betur bylt við, það eina sem kom uppúr henni var “Er mig að dreyma” og risastór augu. Svo kom mottu-Rúnar og fékk knús eins og mamma. Mamma hafði farið í kólus og keypt 1,5 kg af nammi og líka páskaegg sem Rakel átti að taka með í bakaleiðinni til mín. Jibbý núna á ég páskaegg og nokkur nammi eftir hehe.

Næsta stopp var hjá Rannveigu, þar þurfti ég að fela mig vegna þess að Breki kom til dyra og mottan rædd sem og annað vandræðalegt smalltalk á meðan Rannsa kom niður með hraunkassann í annari og hraunbita í hinni (classic) og svo hló hún bara og brosti þegar hún sá mig. Ekkert smá skemmtilegt. Þá urðu vaktaskipti og Anna fór að hafa sig til fyrir kvöldið en Rannveig tók við bílstjórahlutverkinu og Ninna tók upp tólið og hringdi sem Rakel í Berglindi.

Stopp númer þrjú var í Jörfalindinni, Berglind, mottu-pabbi, tvíburarnir, Anna Margrét og Ísabella voru rétt ókomin. Við  lögðum innst í botnlanganum og biðum. Hlupum svo til þeirra þegar þau voru á leið inn. Það voru allir steinhissa og enginn að fatta neitt strax, það fyrsta sem Berglind hugsaði var hversu lík þessi Rakel væri Ernu… Brynja Dögg var fyrst til að átta sig og hljóp í fangið á mér og svo fylgdi Emma Dís eftir í þrefald knús.

Kvöldinu varði ég svo með systrunum fjórum og Laufeyju frænku og gisti uppí hjá Önnu Margréti dúllu. Daginn eftir var farið á fimleikaæfingu og  haldið vöfflukaffi.

Á mánudaginn var ég heima með Ísabellu Ósk og um kvöldið fór ég í sund með Rannveigu og bauð Önnu Margréti, Ingu og Sunnu með.

Þriðjudagurinn fór í lærdóm og yndislegt matarboð hjá Telmu frænku með Kalla og Brynhildi Hafdísi englabarni.

Í dag er miðvikudagur og við Anna bökuðum bananabrauð og ætluðum að hitta Kötlu í Kringlunni og fara svo í bíó á Alice in Wonderland. Daginn áður hafði ég verið í sambandi við tvær kvenraddir um að þær ætluðu að koma og sækja gjafir sem ég flutti með mér til Íslands. Ég fékk símtal frá einni þeirra í morgun sem sagðist ætla að koma kl.16:10 og við Anna ætluðum í strætó kl 16:26. Þegar klukkan var 16:05 hringdi dyrabjallan og ég leysti út hluta gjafanna, þá náðum við strætó kl.16:11. Nokkrum mínútum seinna… eða þegar við vorum hjá  Ölduselsskóla hringir síminn og kvenrödd segist vera fyrir utan…haha þá voru þessar báðar að koma á sömu 10 mínútunum. Við Anna stukkum út úr strætó og röltum rösklega heim og létum seinni pakkann af hendi. Höfðum sem betur fer tekið skiptimiða og náðum að hlæja smá að þessu á leið í Kringluna. Lísa í undralandi var æðisleg.

Ég keypti flugmiðann til Íslands fyrir mánuði. Ástæðurnar voru einfaldar, þær eru tvær, sú fyrsta er að ég er farin að sakna fjölskyldunnar minnar ofsalega mikið og sú seinni er mikill skammtur af skólafríi. Samkvæmt stundatöflum KTH er prófavika en bekkurinn minn tekur öll prófin í vor og þess vegna er frí þessa vikuna í skólanum, síðan koma tvær vikur í kennslu og að þeim liðnum tekur við 11 daga páskafrí. Ég vann mörg verkefni fram í tímann áður en ég fór út og fékk meira að segja að fara með fyrirlestur á kennarskrifstofu daginn áður en ég flaug sem hinir í bekknum eiga að flytja 31.mars.

Ég náttúrulega steingleymdi að taka myndir í öllum hamaganginum og í heimsókninni hjá Telmu!  En það er svosem ekki svo nauið því skjárinn á myndavélinni minni er ónýtur og allar stillingar því horfnar út um veður og vind. Því er ekki hægt að búast við miklum myndaskap héðan í frá.

Fóturinn er að lagast en enn bólginn eins og sést:

Advertisement

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.